Ég hef einhverntíma skrifað um það hér að mamma mín sé furðuleg
og reyndar systir mín líka. En nú er þriðja skrítna konan búin að
planta sér í veruleikann hjá gamla, sjálf kærastan mín hún Bjarney.
Hún er ekkert skárri ein þær mæðgur.
Ég kom heim áðan og mamma bað að heilsa mér, sagðist ekkert hafa
séð mig í marga daga, sem er rétt. Hún er þó búin að hringja í mig
í marga daga.. Alltaf að spyrja hvað ég borði.
Í dag spurði hún svo hvað ég fengi að borða núna þessa dagana,
hvort ég væri að borða eitthvað (í þessum skrifuðu orðum er að hún
að færa mér niðurskornar rófur) og hvort ég væri að svelta. Ég er
búinn að þyngjast um 1.5 kg á einum mánuði síðan ég fór frá
henni.
En greyið Bjarney mín er ljóshærð eins og mágkona sín. Um daginn
kvartaði hún yfir því við mig að það kæmi ekkert vatn úr fjandans
sturtunni. Ég hafði ekki miklar áhyggjur þar sem ég var hreinn og
hún þreif sig með þvottapoka (góður kærasti). Daginn eftir var
þetta sama vandamál uppi og ég leit á málið. Þá var snúið upp á
slönguna, þannig að það rétt dropaði!!! Vandamálið leyst á 2
sekúndum.
Það var líka annað vandamál um daginn. Það kom leiðinlegt lykt
úr einu niðurfalli á baðinu. Ég sagði henni að það þyrfti að hella
bara vatni því lagnirnar væru orðnar skraufaþurrar. Hún er dugleg
þessi elska, tekur þetta mjög alvarlega. Í gær setti hún meira að
segja sápu með vatninu ofan í niðurfallið, hún er að sápuþvo
pípulagnirnar í íbúðinni sinni
