09.12.2006 22:45:18 / jonpall

Rjómamenn og sturtur

Pjakkurinn er helvíti sáttur við framgöngu sína í verklega fimleikaprófinu. Svo sáttur að upphitanir í afreksskóla FH og á fótboltaæfingum hafa undanfarið innihaldið mikið af kollhnísum, handahlaupum og arabastökkum. Að sjálfsögðu hef ég "þurft" að sína krökkunum hvernig á að gera hlutina og ég hika ekki við að leiðrétta.

Merkilegt með þennan skóla, í fyrra var ég að alltaf að snúa litla menn niður vegna þess að ég var að læra júdó og glímu í skólanum. Sennilegast var ég að snúa strákana niður vegna þess að ég átti ekki séns í neinn í skólanum og var til dæmis alltaf skíthræddur þegar ég keppti við stelpu!!

Þar sem ég hef verið nokkuð duglegur við að skella mér í líkamsrækt undanfarið hef ég verið nokkuð duglegur við að fara í sturtu á almenningsstöðum. Þetta helst nefninlega oft í hendur. Ég hef svolítið verið að hugsa hvort það sé ekki draumur í dós að vera duglegur í ræktinni og vera rjómi. Mér finnst mjög líklegt að rjómar séu mjög graðir þegar þeir koma heim úr ræktinni og kannski ef ég er heppinn þá er ég kannski í minninu hjá einhverju strákum þarna úti í bæ!!! Ekki það að ég sé eitthvað með rjómakenndir, en síðan ég keppti í herra olympiu þá hefur mér alltaf fundist hrós þegar fólk hrósar minni ytri fegurð :)

En kannski eru hommamenn líka geggjað pirraðir þegar þeir koma heim af æfingu. Kannski nýbúið heilt átaksnámskeið fyrir of feita karla !! Allavega yrði ég ekkert sérlega sáttur ef ég væri í sturtu og það myndi fyllast klefinn af konum nýkomnum úr erobiktíma fyrir 90 kg plús!!

begga skrifaði
Ha ha ha bíddu bara þangað til að þeir fara að missa sápuna fyrir framan þig í sturtunni og slá þig í rassinn með handklæðinu... En svona í alvörunni er það góð tilhugsun að vita af hommum heima hjá sér að fitla við sig og hugsa um þig....
Bjarney skrifaði
og ekki yrði ég sátt ef ég vissi af þér í sturtu í kvennaklefanum!!! Hvernig annars ættirðu að komast i návígi við offitusjúklinga í sturtu?? Haltu þig réttu megin félagi! Bæði kynhneigðar- og sturtuklefalega séð..!
Bjarney skrifaði
þetta átti nottla að vera:"að komast í návígi við KVENKYNS offitusjúklinga" sennilega alveg nóg af karlkyns offitusjúklingum í sturtuklefanum SEM ÞÚ ÁTT AÐ NOTA!!! ;oþ

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.